|
Prenttækni
er einn ef þessum litlu rótgrónu risum
á prentmarkaðnum. Með um 29 ára starfsemi
að baki búum við yfir víðtækri
reynslu á sviði hvers kyns prentverks. Stærðin
er ekki allt í prentverki og við bjóðum
lipra og persónulega þjónustu og leggjum
áherslu á skjót og vönduð vinnubrögð.
Samtímis er reynt að halda kostnaði í
lágmarki án þess að það
bitni á gæðum þjónustunnar.
Við
veitum viðskiptavinum okkar hagstæðustu kjör
hverju sinni í samræmi við umfang verkefna.
Prenttækni býr yfir þeirri reynslu, þekkingu
og tæknikunnáttu sem þarf til að vinna
hvers kyns prentverk; blöð, bæklinga, auglýsingar,
veggspjöld, o.s.frv allt frá því
hugmynd kviknar þar til verki lýkur.
Margrét
Gunnarsdóttir
prentsmiðjustjóri
|

|
|
Flaggskip
Prenttækni, fjögra lita prentvél Adast
Dominant.
|
|