Öll fyrirtæki senda frá sér reikninga. Algengustu gerðir reikninga eru í einriti í A4 stærð eða reikningar í A5 stærð í 3 riti. Reikningar í A4 stærð eru gjarnan prentaðir út úr bókhaldi fyrirtækisins eða frá Excel skjali, ef fyrirtækið er ekki með tölvubókhaldskerfi. Reikningar í A5 stærð í þríriti henta vel smærri fyrirtækjum eða einstaklingum, sem skrifa sína reikninga. Reikningar í þríriti eru með tölusetningu og settaðir saman og gataðir. Reikningar í A4 stærð geta einnig verið númeraðir og gataðir. Við bjóðum að upp á fullan frágang reikninga, tölusetningu, möppugötun, blokkun, settun og fleira.
Nytsamar upplýsingar og viðmið
Algengur pappír | 80-90gr. Litljósritunarpappír Soporset Preprint |
Algengar stærðir | A4 210x297mm (21×29,7cm) A5 148x210mm (14,8x21cm) 21×21 cm 21×28 cm Sérstærðir eftir óskum |
Útfærslur | Sjálfkalkerandi NCR 1-lit Svart/Hvítt Sérlitir (Pantone) Prentun í fullum lit (CMYK) Prentun í fullum lit+sérlit (CMYK+Pantone) |
Viðbótarþjónusta | Númering Rifgötun Blokkun Settun Samhangandi reikningar |