Nafnspjöld

Nafnspjöld eru ávallt góð kynning á starfsmanni og fyrirtæki á mannamótum og ýmsum viðskiptatengdum atburðum. Vel útfært nafnspjald er góð kynning á annasömum stundum hérlendis og erlendis.

Algeng er að hafa logo fyrirtækis, nafnið þitt, staða þín, símanúmer, netfang, veffang, aðsetur.

 

Nytsamar upplýsingar og viðmið

Algengur pappír 190-300 gr. Digital premium silk.
Algengar stærðir 55 X 85 cm (sama stærð og á kreditkortun)
85 X 55 cm (sama stærð og á kreditkortun)
Útfærslur Prentað öðru megin eða beggja vegna, upphleypt, með gyllingu, laminerað eða þrykkingu.
Samanbrotið (t.d. fyrir tímaskráningar)
Plöstun til að tryggja langa endingu (t.d. fyrir afsláttarkort)

Markpóstur

Markpóstur er vinsæl aðferð að auglýsa og kynna fyrirtæki eða þjónustu fyrirtækis, þar sem hægt er að ná til fjölda fólks á stórum svæðum með tiltölulega litlum kostnaði. Ef þú vilt koma skilaboðum beint til þíns viðskptavinar þá án samkeppni við aðra auglýsendur þá er markpóstur góð leið til þess. Markpóstur er góður kostur og mjög áhrifamikill þegar ná þarf til ákveðins hóps. Markpóstur getur verið mjög fjölbreyttur og mismunandi t.d. bæklingar, einblöðungur, fréttabréf, boðskort, sölubæklingar o.s.frv. Það skemmtilega við markpóst er að hugarflugið fær að ráða. Við getum framleitt nánast hvað sem er. Allt er mögulegt.

Nytsamar upplýsingar og viðmið

Algengur pappír 115 – 250 gr. Silk
Algengar stærðir A4 210x297mm
A5 148x210mm
A6 (105×148 mm
A7 (74×105 mm
99×210 mm
Útfærslur 1-lit Svart/Hvítt
Sérlitir (Pantone)
Prentun í fullum lit (CMYK)
Prentun í fullum lit+sérlit (CMYK+Pantone)

 

Ársskýrslur

Ársskýrslum er oft stolt og prýði fyrirtækja sem mikill metnaður lyggur í og gaman er að sýna fallega skýrslu á aðalfyndi. Hægt er að gera skýrslur eftir þörfum hvers og eins. Einfaldar skýrslur í einum lit sem og skýrslur með flóknum frágangi.  Við getum aðstoðað við að vinna ársskýrslur allt frá grunni í samvinnu við viðskiptavini eða tekið við endanlegum gögnum sem eru tilbúin til prentunar.  

Nytsamar upplýsingar og viðmið

Algengur pappír 90-115 gr. Silk (Innsíður)
250-350 gr. Silk (Kápa)
Algengar stærðir A4
Frágangur Algengt er að skýrslur séu heftar í kjölin eða fræst í kjöl. Minni skýrslur eru gjarnan gormaðar eða límheftar